Alrunarblogg

OneNote
Um daginn viðurkenndi ég opinberlega að ég fattaði ekki hvað „tomtom“ væri og ég fattaði ekki hvað það var því að i umræðunni var bein tenging við Barcelona. Ekki nema von að ég fattaði ekki neitt. Vandræðalegt samt. Það eru margir að gagnýna mig fyrir að vera gera látlaust grín af Fúsa útum allt. (Hann býður upp á það). Þessvegna opinberaði ég tomtom fávisku mína. Til að jafna stigin. En núna er komið upp nýtt sem gerir það að verkum að ég skýst fram úr honum eins og kenýskur OL hlaupari skýst fram úr íslenskri flíspeysufitubollu.

Og ástæðan fyrir að ég ætla að uppljóstra vandræðalegasta og aulalegasta fattleysi í mínu seinnitíma lífi, er sú að nú get ég héreftir gert grín af Fúsa forever!!!

Ég gerði ritgerð árið 2008 og ég er að gera ritgerð núna. Ég byrjaði að skrifa í febrúar. Ég skrifaði í word árið 2008 og ég skrifaði í word þangað til í gærkvöldi. WORD. Já ég veit þetta er ótrúlega aulalegt. Og ég sem var alltaf næstmesti tölvunördin í hjúkkunáminu og var alltaf með nýjasta nýtt og kunni næstum mest.  Samt er ég hálfgerður auli á tölvur og skýli mér oftast á bakvið eiginmanninn og þykist bara kunna e-ð. (Hjúkrunarfræðingar eru oft ekkert miklir tölvunördar svona upp til hópa). Og ég er allavega oftast betri en danir (auðvitað) á tölvu (fyrir utan gegnumreykta gamla sjúkraliðann i vinnuni minni, sem tekur að sér að gera við tölvur og/eða formata þær fyrir alla vinnufélagana). Í gær var ég á kvöldvakt og var að vesenast við að leita að ritgerðunum á intarnetinu sem hinir hafa gert í gegnum árin en fann þær ekki. Ég hringdi yfir á svæfinguna og þá kom ein sem er líka að gera ritgerð (við fylgjumst að) til að hjálpa mér að leita. Í miðju leitarferlinu, spyr hún hvernig ég geri ritgerðina mína? Öhh bara í word. Já, en hvernig hefurðu yfirsýn yfir hana, notarðu ekki OneNote?

Ég: „ég bara skrolla upp og niður og allskonar“

Hún: „prentarðu út?“

Ég: „nei, tilhvers?“

Hún: „afhverju notarðu ekki OneNote?“

Ég: „hvað er það?“ (veit, hefði þarna átt að kasta mér útum gluggann)

Hún (mjög yndæl hjúkka og ekkert hneyksluð) fór að útskýra það fyrir mér… ég var alveg blank. Hún fór yfir á svæfinguna og sótti tölvuna sína og sýndi mér… ahaaaa, jú dóttir mín notar þetta mikið í menntaskólanum. Jú, við erum örugglega með þetta heima í ÖLLUM okkar tölvum… ROÐN!!!

Og hvað er meira vandræðalegt að hafa verið að skrifa ritgerð núna í 3 og hálfan mánuð og bara á gamla mátann. Árið 2008 gerði ég mig líka að algjöru fífli…

Árið 2007 skrifar PC WORLD þetta:

„Første udgave af OneNote kom på banen for små fire år siden som del af  Office 2003-familien. Dengang var der ikke rigtig nogen, der opfattede  programmet som andet end et kuriøst forsøg på at give salget af  tablet-pc’er kunstigt åndedræt.“

Fyrir fjórum árum síðan… árið 2007… og það þýðir árið 2003!!!

Hvar hef ég verið???

Veit bara hvar ég er núna… í himnaríki með OneNote… vá hvað er gaman að gera ritgerð…

…back to work (og bíð spennt eftir að fá tækifæri til að gera grín af eiginmanninum)

mitt skemmtilega líf… love it!
Langar óstjórnlega mikið til að deila með ykkur mínu skemmtilega lífi, ekki afþví að það sé neitt skemmtilegra en ykkar, mér finnst það bara sjálfri svo skemmtilegt. Svona fyrst að ég lifði af helgina í faðmi fjölskyldunnar. Ótrúlegt að senda mann í 3ja daga helgarfrí þegar fjölskyldan er líka í fríi…brot á mannréttindum. Allavega, ég er á lífi, fjölskyldan líka og öll við nokkurskonar hestaheilsu á andlega sviðinu.

Things to do það sem eftir er af maí

Barcelona

Ritgerð

Vinna ógeðslega mikið

1864 hlaup

Ritgerð

Things to do í júní

Gardenparty

Afmæli -Fimmtán, fyndin og fögur

Ritgerð

Alt for damerne hlaup

Ritgerð (veit einhver hvenær ég á að skila þessari ritgerð?)

Kvennahlaupið

Ritgerð (þarna hlýt ég að vera búin að skila)

missi af götuparty og útskrift

Ísland!!!!!!!!!! (I love ICELAND)

Things to do í júlí

Reykjavík (I love Reykjavík)

Reykjavík downtown…

Kulusuk (kem örugglega til með að elska Kulusuk)

Tasiilaq (kem líka til með að elska Tasiilaq)

Ísland kæra Ísland

Kyssa systkini mín, fjölskyldur þeirra og Sigrúnu svo mikið að þau verða öll rennandi blaut í framan eins og hundar sem eru nýbúnir að synda í tærri tjörn.

Norge/Bodö

Danmark (home sweet home)

That´s it… er alveg með hjartslátt

þunglyndi vs harka
Hér situr maður á föstudagskvöldi aleinn í sófanum, báðar unglingurnar að spóka sig í miðbæ borgarinnar og Sigfús liggur flatur í hinum sófanum og veifar löppunum til að fá gang í æðardæluna, því e-ð virðist vera í stoppi vegna reykinganna síðastliðin 30 ár.

Hann Sigfús minn spurði Aldísi hvort hún vildi horfa á Hunger games í kvöld. Aldís sagði nei því að hún væri að fara í bæinn. Ég sagði að þau hefðu hvorteðer ekki getað horft á HG því ég væri að fara að horfa á Útsvar. Þá fer Sigfús minn að hlægja og spyr hvort ég ætli virkilega að horfa á 80´s spurningaþátt á RUV? Ég kvað já við og sagði að þetta væri bara fínn þáttur. Aldís tók þá um höfuðið á sér og hrópaði upp: „OMG, ég trúi ekki að ég går glip af bóndaquizþætti með bóndaspurningum, ég deyyyyy!!!!!!“

Fjölskyldan mín er svo þroskaheft… stundum meika ég þau bara ekki!

En að öðru. Veit ég var frekar lame þarna um daginn, að gera grín að sálfræðiaðstoð… svona gerir maður ekki, veit, sorry. En finnst samt algjör óþarfi af fólki að sárna. Þetta var bara í góðu. Ég hef ekkert á móti sálfræðiaðstoð og finnst ekkert asnalegt við það. Það hlýtur að meiga gera grín að þessu eins og fötluðum, aröbum (jolla jolla, hva só fedde), litlu fólki, feitu fólki, skizzóum og bara öllum. Það má gera grín að öllum og öllu (með örfáum undantekningum) og þessvegna líka sálfræðiaðstoð. Málið er eiginlega að ég þarf að játa svolítið fyrir ykkur… ástæðan fyrir þessu ljóta gríni var eiginlega sú að ég er pínu hissa og hef verið hissa í svoldin tíma.

Mér finnst fjöldi þeirra sem „ganga niður með stress“ (gaa ned med stress), eða hvað sem þetta kallast nú á íslensku, vera ótrúlega mikill. Og stór hluti af þeim fá þunglyndi. Og svo eru það þeir sem fá þunglyndi án þess að ganga niður með stress.  Nú er ég mest að horfa á þann hóp fólks sem er í svipaðri stöðu og ég sjálf. Með fasta vinnu, fjárhagslegt öryggi, venjulega fjölskyldu (útávið) og gerir eins hluti og hin ósköp venjulega meðalfjölskylda gerir.  Fólk hrynur bókstaflega niður. Og ég fatta það ekki! Ég fatta hreinlega ekki hvað er svona erfitt. Tökum vinnuna mína sem dæmi. Týpisk eða frekar róleg gjörgæsludeild, mikið vagtaálag, stundum flóknir sjúklingar, fínir vinnufélagar, alltaf e-ð nýtt að koma, ný tölvuprógröm, nýjar vélar, nýjir læknar (margir ótrúlega myndarlegir) og spælandi laun. En hvað er það sem er svona erfitt að fólk verður þunglynt? Ef ég er ógeðslega þreytt á sunnudagskvöldi eftir 56 tíma vinnuviku (sem gerist bara af og til), þar af 32 helgarvinnu, og líður hrikalega ílla, með alltof hraðan púls og svo úrvinda að manni langar til að æla, þá fer ég bara að sofa, og sef lengi á mánudeginum og sleppi öllu sem ég nenni ekki að gera, t.d. tiltekt, þótt allt fljóti í drasli og skít eftir vikuna því fjölskyldan mín (sérstaklega unglingurnar) hefur aðra sýn á drasli og skít en ég. Síðan fer ég líklega að vinna aftur á þriðjudeginum, miðvikudeginum og fimmtudeginum og er enn þreytt og meika heldur ekki að taka neitt  til  að ráði þessa daga.  Kannski er ekki tekið til fyrr en á föstudeginum, því ég forgangsraðaði vinnunni, fjölskyldunni, félagslífinu, hreyfingu og facebook, langt fram fyrir tiltekt. Svona mest til að vera glöð og hamingjusöm og halda sönsum

Og þessvegna er það ofar mínum skilningi þegar ungar stelpur, menntaðar, barnlausar, í sambandi og kannski með hund eða einn hest, detta niður í þetta líka þunglyndi vegna álags?!!? Hvaða álags??? Að vinna 32-37 tíma vinnuviku, búa í lítilli íbúð, passa eitt dýr og eiga sætan kærasta… er það álag?

Eða bara þegar venjulegar konur (og menn) eins og ég, standast ekki álagið… og enn spyr ég, hvaða álag? Það er alltaf að gerast e-ð nýtt, og heilinn í okkur er gerður til að læra nýtt, sérstaklega þegar hann er vanin á það. Og ef það er of mikið álag, þá verður fólk bara að forgangsraða… svo sáraeinfalt er það. Í sumum tilfellum þarf fólk bara að vera hart af sér.

Stundum, þegar maður heyrir um enn eitt þunglyndistilfellið, enn eina sálfræðiheimsóknina og enn eitt „niður með stress“ dæmið, dettur mér í hug pabbi, sem fer á traktornum með hvíta heyrúllu á gafflinum framan á traktornum, upp á tún til hestanna á veturnar. Og hestarnir flokkast um heyrúlluna og byrja að éta (pabbi tók plastið af). Ef maður stillti risastórri lukkupillu (á stærð við heyrúllu) út á tún í Kongevejsparken, þá yrði hún étin upp til agna á augabragði, reyndar hraðar en hestarnir ætu sína heyrúllu.

Sumir tala um kröfurnar í þjóðfélaginu… að það séu gerðar alltof miklar kröfur til fólks. Heyrði þetta síðast í dag, ein sagði að fólk væri að kikna undan kröfum þjóðfélagsins. Annað hvort er ég staurblind eða algjörlega tóm í kálhausnum en ég sé ekki þessar kröfur. Sé bara þróun þar sem maður vex með verkefnunum.

En kæra fólk, ekki móðgast aftur. Plííís. Og ég vil taka það fram að ég er ekki að tala um fólk sem hefur orðið fyrir Óeðlilegu álagi (s.s. sjúkdómum, óeðlilegum missi, óeðlilegu atvinnuleysi, fátækt, vonlausum vinnstad og svona mætti lengi telja). Ég er ekki að gera lítið úr þunglyndi eða stressinu. Ég er bara að spá í hvað varð um hörkuna?

(og p.s. Sigfúsi og Aldísi finnst Útsvar ekkert hallærislegt, þau voru bara að djóka í mér)

uppleyst og sálfræðingslaus…
Mér hefur lengi langað til sálfræðings… finnst alltaf svo duló, þegar fólk segir: „já, sálfræðingurinn minn …“. Og pínu heillandi og svoldið í líkingu við Frímúrararegluna -maður ímyndar sér allt mögulegt en hefur ekki græna hugmynd um hvað fer fram á þessum hittingum. Ég hef alltaf séð fyrir mér bekk, hlýtt teppi og með pakka af kleenex á maganum. Svo situr sálfræðingurinn á móti manni og horfir á mann… síðan get ég ekki ímyndað mér meira, þarna hverfur myndin. (Sálfræðingurinn er alltaf karlmaður, en því miður í flauesbuxum)

Ég hef á tilfinningunni að næstum allir nema ég hafi farið til sálfræðings, en engin vill segja mér hvað gerðist. Bara endalausar tilvitnanir… ekkert krassandi :-/ En samt auglýsa flestir að þeir hafi sálfræðing… „sálfræðingurinn minn segir… blablabla“.

Í kvöld spurði ég á fb hvort einhver vissi um góðan sálfræðing sem væri ekki mjög dýr… fátt var um svör, þótt ég þyrði að veðja að minnst 70% fb vina minna ætti sinn eigin sálfræðing eða þekkti einhvern sem ætti sinn eigin sála. Afhverju er þá svona fátt um svör? ekki virðist það neitt feimnismál að eiga sinn eigin sálfræðing nú til dags

Í dag þegar ég var að fara heim úr vinnunni kl 16.57 til að ná foreldraviðtali, mætti mér úrhellis rigning. Ég hafði hringt í Fúsa og minnt hann á viðtalið og hann hafði spurt hvort hann ætti að sækja mig. Ég hélt nú ekki! Ég var á hjóli! En þar sem vinnuumhverfi dagsins var í gluggalausu rými, fattaði ég ekki neitt fyrr en ég kom út. Það ringdi eins og hellt væri úr fötu. Ég hafði ekki annarra kosta völ en að stíga upp á Kildemoes og hjóla í gegnum flóðið þessa 2.5km niður í skóla. Þegar þangað var komið, var ég svo blaut að það lak af mér, skórnir voru eins og ég hefði vaðið í pollum allan seinnipartinn og maskarinn var mestur á augabrúnunum. Mér leið mjög ílla. Síðan var komið rugl á röðina því einhverjir höfðu mætt of seint, svo það endaði með að þetta tók 1 kl.t. niður í skóla. Ég var frosin og algjörlega uppleyst á sál og líkama. Maður er nú ekki gerður úr neinni steinsteypu, svo að sjálfsögðu leysist maður upp í of miklu vatni. Þessvegna erum við ekki fiskar. En mér leið semsagt mjög ílla þegar ég kom heim, átti erfitt með að safna mér saman aftur og fór þessvegna að hugsa um að mér langaði til sálfræðings. En glætan spætan að ég, nískupúkinn og sjúklega sparsama týpan,  tími að eyða of mörgum aurum í svona hitting með teppi og kleenex. Þessvegna auglýsti ég eftir einum góðum billegum sála á fb. En fólk virðist vera frekar eigingjarnt á sálfræðingana sína og vill ekki deila þeim. Ég tek nú ekki alla hendina ef þið réttið mér litla puttann… ætlaði bara að prófa einn tíma svona að ganni. Kannski ég bíði bara eftir að einhver sálinn selji sig á hálfvirði á sweetdeal (hópkaup), þá gríp ég gæsina á meðan hún er heit.

Samviskubitið
Fúsi keypti 3 nýja fataskápa í gestaherbergið um daginn.

Þeir kostuðu i allt 250 kr.

Hann ætlaði að henda gömlu skápunum þremur en nennti ekki með þá á ruslahaugana og auglýsti þá á Gul og Gratis á 300 kr í allt.

Þeir voru búnir að vera þar inni í nokkra kl.t. þegar  maður hringir og vill endilega kíkja og líklega kaupa. Fúsi var búin að undirbúa sig andlega í prútt og var tilbúin til að fara langt niður, bara ef við þyrftum ekki sjálf að fara með þá á haugana…

Síðan kom hérna fyrir kl.t. síðan, gömul kona með syni sínum (sem hafði hringt) og kíkti. Henni leist svona frábærlega vel á skápana og sagði: „loksins fæ ég skápa í herbergið mitt“ og gekkst að kaupunum. Hún prúttaði ekki einu sinni. Gleðin og þakklætið geislaði af henni og í burtu keyrðu þau með skápana. Fúsi stóð eftir með 300 kr í höndunum, búin að græða 50 kr á að hafa keypt nýja skápa og ásamt svona svakalegu samviskubiti.

Í kl.t. hefur hann setið í sófanum og sagt:

„hún var svo glöð…“

þögn (2 mín)

„hún sagði að nú hefði hún loksins fengið skápa í herbergið sitt“

Ég: „já, hún hefur verið svakalega fátæk…“

Fúsi: „já….“…

…“ég hefði átt að gefa henni skápana…“

Ég: „afhverju, var e-ð að þeim?“

Fúsi: „nei, ekki beint, en hún var líka frekar gömul…“…

…“ég ætlaði hvort eðer að henda þeim“

dæs og löng þögn… (8 mín)

„æ nú líður mér ílla“

„Dagný, hugsaðu þér… hún hefur kannski aldrei átt skápa“

„ohh ég hefði átt að gefa henni þá“

dæs…

„hvernig gat ég tekið við 300 kalli?“

dæs og aftur löng þögn (ca 15 mín)

„ég hefði átt að gefa henni þá…“

Ég: „hún var glöð…“

dæs

Fúsi: „hún hefði orðið glaðari en ég hefði sagt: „þú mátt bara eiga þá vinan“"

Ég: „kommon, þá hefði hún bara farið að gráta og hvað hefðirðu þá gert?“

Fúsi: „já, ég veit það ekki“

löng þögn enn einu sinni (passar mér fínt þar sem ég er ekki í stuði til að tala)

dæs…

Fúsi: „hún hefði ekkert grátið hérna hjá mér… mér líður ógeðslega ílla útaf þessu“…

…“hún virkaði allsekkert rík“

þögn (ca 3 mín)

„þetta voru ekkert góðir skápar“

þögn (ca 5 mín)

„ég er með svo mikið samviskubit“

þögn (17 mín)

„ég er farin til Johns“

„ætlarðu nokkuð að blogga um þetta?“ (sá greinilega e-ð í svipnum á mér)

Ég: „nei elskan, dytti það ekki í hug“

Fúsi: „gott, því mér líður mjög ílla útaf þessu“

Jehovarnir -VOL. 4!
Hver dettur ykkur í hug að hafi bankað upp á áðan??? já, getiði 3svar… ættuð samt ekkert að þurfa 3 gett í þessa spurningu. Það var að sjálfsögðu pósturinn, þessi ungi sem er sonur fyrrverandi borgarstjóra Sönderborgar, Jans PropelPik, sem kom færandi hendi með páskaegg from Iceland. Og á eftir honum kom fallegi Vottinn minn. Þessi sem minnir svo á Jude Law. Kom mér nú nokkuð á óvart… og var ég nú eiginlega að vonast til að þeir létu mig í friði því ég er alveg búin að vera nokkuð skýr í mínum skilaboðum. Samt kannski ekki nógu skýr þegar hann kom síðast. Veit ekki?

En allavega, hann stoppaði stutt, vildi bara minna á fundinn þann 4. apríl og gaf mér gulu bókina sem ég afþakkaði í tryllingi í fyrstu heimsókninni. Svo sagðist hann verða niðrá göngugötu í dag og á morgun, ef ég vildi vita meira, eða bara ef mér leiddist. Ég sagði honum að það væri bara leiðinlegu fólki sem leiddist, því það væri svo leiðinlegt að það væri ekki hægt að vera eitt með sjálfu sér (speki frá Jóni í Hvannstóði), þessvegna leiddist mér aldrei!

Hann sagði að ef mig langaði til að gera e-ð skemmtilegra en það sem ég væri að gera núna, þá skyldi ég koma niður í göngugötu! Yeeeaaah right. Ég er nú ekki svona græn (þrátt fyrir ótakmarkað spínatát).

Bara svo þið vitið, þá læt ég ekki glepjast, og fer ekki á date niður í göngugötu, þótt hann sé nánast alveg eins og Jude Law. Ég ætla að gera ritgerð í dag og á morgun.

Góða helgi

Gluggaþvottamaðurinn og Guð almáttugur!
Bréf til sveitafélagsins…

Sønderborg 5. januar 2012

Kære Kommune/forvaltning til social og sundhed.

Dette er 6. gang ut. (undertegnede) henvender sig til jer vedr. rengøringshjælp i eget hjem. I har ikke gjort jer umage ved at svare på ut’s henvendelser og kan ut. formode at grunden til jeres passivitet er at I tror ut. tager pis på jer. Trods ut. har nogenlunde normal familie (udadtil), mellemlang videregående uddannelse, fuldtids job og er fuld mobil, er der ikke nogen grund til at tvivle på ut’s troværdighed. (Ut. har også et rent straffeattest).

Ut. anmoder hermed endnu en gang om hjælp/støtte i form af rengøring i ut’s eget hjem, i kraft af at ut. er total uegnet til den slags arbejde. Ut. gør det sjælden og dårligt. Det kan, på sigt, skabe sundhedsmæssige problemer hos familien, i form af bl.a. hudeksem, astma, psykisk ustabilitet, social isolation, fodsvamp og al slags forskellig lus. Ut’s husbond, gør kun rent når ut. gør det, så ham kan ut. ikke bruge til noget. Ut’s  2 døtre er i teenageralderen og deres psyke er i forhold til det. Ut. er faktisk meget taknemmelig for at de stadig trækker vejret i al den støv der er inde på deres værelser.

Ut’s største ønske er at I tilgodeser ut’s. behov, trods massive besparelser. Ut. ser det som et forebyggende tiltag fra jeres side, idet at det ellers ender helt galt for os!

Hvis ut. skal minimere opgaverne til jeres rengøringspersonale (pga. besparelserne), vil ut. prioritere gulvvask (alle etager), vinduespudsning (både inde og ude), rengøring af ovnen, rengøring af begge badeværelser, og rengøring af køleskab. Alt andet må ut. selv klare.

Ut. ser frem til at høre fra jer snarest muligt (julepynten SKAL ned).

På forhånd (mange) tak.

Undertegnede

Dagný Sylvía Sævarsdóttir

Þið ykkar sem hafið lesið mig síðastliðnu ár, vitið að ég hef barist öturlega fyrir rétti mínum um heimilishjálp á vegum sveitafélagsins. Hef ég sent fleiri en eitt svona ofanfarandi bréf og ekkert hefur gerst. Ekki eitt einasta svar hef ég fengið. Þetta ástand (hreingerningarástand) hefur haft töluverð áhrif á fjölskylduna í gegnum árin, aðallega mig þó. Ég hef fengið ófáar athugasemdirnar frá eiginmönnum húsmæðra bæjarins um hversu vonlaus hreingerningardama ég sé… og haldiði virkilega að það hafi ekki áhrif á mann??? Sálartetrið er nánast í molum og ég byrja að svitna og skjálfa bara við að horfa í áttina að tusku. Hata tuskur… en það vitiði líka þið sem hafið lesið mig.

Undanfarnar vikur hef ég verið viðriðin Guð almáttugan meira en venjulega. Bæði hafa vottarnir reynt að hafa áhrif á mig (með því að senda myndarlegasta vottann á dyrnar hjá mér) og svo höfum við fjölskyldan eignast nýjan vin sem er í miklu sambandi við Guð almáttugan. Eins og þið flest vitið, höfum við fjölskyldan mætt í kirkju þegar við höfum átt að mæta og kannski 3svar sinnum í viðbót. En þó má segja að þessi skipti sem við höfum mætt í kirkjuna, höfum við notið þess og lítum við á Christianskirkjuna sem okkar kirkju, þótt við stundum ekki trúnna.

Undir áhrifum fallega Vottans, sem er bara best að halda áfram að kalla Jude Law, til að rugla engan, og nýja vinar okkar, fór ég að spá í Guð almáttugan. Sérstaklega þar sem nýji vinurinn segir að Guð almáttugur gefi honum og fjölskyldunni mikin styrk og mátt til að gera allskonar hluti og standast erfiðleika og freistingar.

Ég ákvað að testa þetta. Ég bað Guð almáttugan um styrk, stuðning og mátt til að fá hjálp við hreingerninguna… og viti menn -í dag birtist þessi líka fallegi útlendingur á stuttbuxunum með langan stiga og græjur í beltinu og þreif alla gluggana í húsinu!!! Ég brást við eins og stelpurnar sem vinna fegurðarsamkeppnir, greip fyrir mund og nef með báðum höndum og grét. Eða grét ekki beinlínis en átti mjög bágt með að leyna hrifningu minni. Hann sá það samt ekkert, því ég faldi mig í kjallaranum á meðan hann pússaði. Var ég búin að segja að hann var í stuttbuxum?

En svona til að forðast allan misskilning þá sendi Guð almáttugur ekki gluggaþvottamanninn bara til mín svona alltíeinu, útaf engu. Heldur gaf Guð almáttugur mér styrk til að hringja í margra gluggaþvottamenn, biðja um tilboð, velja og panta! Og hann kom til mín í dag og tilfinngin var svipuð og þegar fólkið horfði á Jesús ganga um á vatninu (ímynda ég mér).

Ég mæli með þessu… setjið ykkur í samband við Guð almáttugan  og þá gerast hlutirnir

Er svo montin, er á barmi sprengingar!
23. febrúar 2012 skráði ég mig í Hraðbrautarhlaupið. 5 km flokkurinn var lokaður og því var það minnsta mögulega 10 km, sem ég vissi að hefði ég  farið létt með ef ég hefði ekki hreinlega hætt að hlaupa í september 2011! En ég skráði mig samt, aðallega til að upplifa hlaupið, svona „once in a lifetime“ dæmi, og ALLIR voru að fara, bæði vinnufélagar, íslendingar, vinir og nágrannar. Ég varð bara að vera með.

2. mars 2012 var mín fyrsta hlaupaæfing, 2 km (ekkert labb). Eftir það var æft þegar tími gafst til, og hlaupið sett í aftasta sæti. Það félagslega, svo sem hittingur, leikhús, bæjarferð, tónleikar, klúbbar og fundir er alltaf í fyrsta sæti, svo er það ræktin, mínir heittelskuðu bootkamp og -motionsboxningstímar koma í annað sætið, vinnan er náttl þarna einhversstaðar á milli og svo var hlaupaæfingum troðið á milli alls hins. Það tókst að ná 7 hlaupatúrum í allt. Vel af sér vikið!!! ikke? tæbl. 7 km langur var lengsti túrinn og þar með hef ég aldrei á æfinni hlaupið 10 km.

Fyrr en í dag… full bjartsýnar og spennu! Samt hvorki með derhúfu né hlaupaúr, en í fínum skóm og góðum buxum með shuffle stútfullan af reiðri tónlist og í yndislegum félagsskab

Ásamt 9200 öðrum (þetta er samt bara hluti af 10 km hópnum að bíða eftir að fara af stað)…

…hljóp ég 10 km án þess að labba eitt skref, í yndislegu veðri með góðan  stuðning frá Red Hot Chili Peppers, Rammstein, Nirvana, Iron Maiden, The  Doors, Metallica og Pink.

Sáuði þetta??? 10 km!!!

Er enn að bíða eftir tímanum… F5 takkaræfillinn er orðin beyglaður! En ef ég verð undir 70 mín, þá ætla ég að biðja einhvern um að gefa mér gjöf!

Islandsk idrætsforbund Sönderborg (vantar Einar og Jón, 1/2 marathon töffara) -takk kæru vinir fyrir frábæran dag!

Ljósmyndari: Sigfús Jónsson frá Fellabæ

Vottar Jehova VOL. 3 -Jesús liggur í póstkassanum…
Vottarnir hafa verið þónokkuð öflugt umræðu efni undanfarnar vikur, bæði hér heima og í vinnunni. Vottarnir hafa líka verið óvenju árásargjarnir undanfarnar vikur og margur bæjarbúinn fundið óþyrmilega fyrir þeim.  Í lyfjaherberginu í morgun, barst talið að þeim enn einu sinni. Allir í lyfjaherberginu höfðu fengið miða með mynd af Jesússi í póstkassann sinn undanfarna daga. Líka unga vinnufélaga mín sem ég vel að kalla Sigríði (vegna persónuverndar og vinnumórals). Sigríður sagðist ekki vita hvað hún ætti að gera við þennan miða… og við hin sögðum henni að henda honum í ruslið…

Sigríður: „gvuuuð, henda Jesús í ruslið… ertu ekki í lagi???“

Ég og hinir: „öhhh?“

Sigríður: „jamen, ég gæti aldrei hent Jesús í rusladallinn, þar dreg ég mörkin…“

Við hin: „Og hvað ætlarðu þá að gera?“

Sigríður: „Jesús verður bara að vera í póstkassanum!!!“

Við hin: „hahah ætlarðu að hafa Jesús í póstkassanum?“

Sigríður: (sem er nokkuð þrjósk) „á meðan ég bý í þessarri íbúð þá liggur Jesús í póstkassanum.“

Steikti fiskurinn!
Það á ekki af manni að ganga!

Í mínu einstaka sakleysi hringdi ég heim úr vinnunni kl 19:02 til að heyra hvað væri í kvöldmatinn. Var orðin ílla svöng og hlakkaði meira en lítið til að koma heim í faðm fjölskyldunnar (svoldið ýkt).

Fúsi sagði mér að hann hefði steikt handa mér fisk og að hann væri að fara til Grethe!

Grethe!

GRETHE!

GRETHE!!!

Þetta kom eins og bylmingshögg í andlitið á mér…

Grethe…

Mér hefði ekki liðið ílla ef hún hefði heitið Jette eða Marianna eða Anne eða Lotte eða bara e-ð allt annað! Bara ekki Grethe!