Í dag er ég þakklát fyrir …

… að Fúsi kom niður í svefnherbergi í morgun, settist á rúmstokkinn, strauk mér og spurði hvort hann ætti að setja brauð í ofninn. Klukkan var orðin hálf níu og ég var bara löt og að hlusta á podcast.

… að ég hafi alltaf staðið föst á mínu þegar Fúsi hefur fullyrt á vorin að eitt tréð í garðinum okkar sé steindautt. Ég hef þrætt fyrir dauða þess ár eftir ár enda blómstrar það hinum fallegustu bleiku blómum þessa dagana.

Blóm í garðinum þessa dagana. 

… að það sé svona mikið blómstrun í umhverfinu þessa dagana því að blóm sem verða á vegi mínum næra býflugurnar og gleðja mig. Það er eitthvað sem ég hef sjálf ákveðið og mér finnst svo mikið frelsi í að vita til þess að ég hef möguleika á að stjórna hugsunum mínum og þar með látið mér líða vel, því að hugsanirnar stjórna tilfinningunum og tilfinningarnar stjórna gjörðunum.

Blóm í Sönderskóginum þessa dagana.

5 Responses to “Í dag er ég þakklát fyrir …

  • Takk fyrir áminningu um að vera þakklátur ??
    Gleðilega helgi mín kæra og bestu kveðjur til Fúsa líka!

  • Æji vá þessi tvö spurningarmerki voru sko mega flott rautt hjarta þegar ég skrifaði ha ha ha

  • Sigrún
    5 ár ago

    Takk fyrir bloggið og að minna mig reglulega á að vera þakklát fyrir lífið og litlu hlutina, sjáumst fljótlega
    @}—}—-}—-

  • Halldór Jóhannsson
    5 ár ago

    Ég er nú þakklátur að hafa hitt þig og Sigrúnu um árið 🙂
    Góðar kærleikskveðjur til þín 🙂

  • Bryndis Fiona Ford
    5 ár ago

    Yndislegt takk fyrir þessar línur elsku Dagný

Skildu eftir svar við Sigrún Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *