Bólóttir leggir og ekki of mikið súkkulaði með fótbolta!

Ég er orðin fæða… eina kryddið á/í mér er salt! Eftir síðustu nótt hef ég séð 7 moskitobit, án þess að leita! Ég smakkast greinilega þrælvel… Girnileg og saðsöm, já og jafnvel nokkuð holl. Þessi bit fara mér líka mjög vel… alltaf gaman að vera með bólótta leggi!

how-to-deal-with-and-prevent-mosquito-bitesÞetta er ekki mynd af mér eða minni mannætu. Þessari mynd er stolið af netinu en þetta gæti mögulega verið ég, ef þessi húð væri ekki svona undarlega röndótt. Ég er samt öðruvísi á litinn.

Hann Sigfús minn liggur enn eitt kvöldið límdur við sófann fyrir framan sjónvarpið… það er fótboltakeppni KVENNA. Hann var að missa sig í gær yfir þýsku stelpunum! Núna heldur hann með öllum 22 stelpunum sem eru inni á vellinum… þær eru norskar og danskar. Og nú spyrjiði hvort ég sé ekki afbrýðissöm… ó nei… þetta er í sjónvarpinu… það eru ekki 22 lifandi stelpukindur hérna inn í stofu hjá okkur. Þetta er ekki raunveruleikinn. Sjónvarpið er sjaldnast raunveruleikinn, nema stundum frettirnar og heimildarþættir. Síðan held ég almennt að fólk ætti að gera e-ð þarfara en að hlaupa löðursveitt, nuddandi sér upp við hvort annað, á eftir tuðru, fullri af lofti. Það þarf t.d. að stöðva hungursneyð í heiminum og byggja fleiri brýr í Danmörku.

2013-07-25 20.49.13

Þarna sést í Herra Sigfús horfa á brot af þessum 22 sveittu gellum… ég slöraði líka skjáinn á nexusinum til að viðhalda örlítilli persónuvernd.

Síðan bað hann mig um að sækja fyrir sig súkkulaðiplötuna SÍNA… hann á sitt eigið súkkulaði…. spáið í það. En ég er ekkert yfir mig hrifin af öllu þessum súkkulaðiáti svo ég sótti bara passlegan skammt fyrir kvöldið fyrir gamlan kall eins og hann Sigfús minn.

2013-07-25 20.51.43

Hann gleypti þetta í sig.

Síðan er það mögulegt outfit á næstu samkomu… allavega ef þessi hiti heldur áfram…

533610_10201437257511155_1506483744_n

Ég á svona sokka og Svala fékk svartan netabol frá sinni bestu frænku og vinkonu, henni Rebekku. Og ég get alltaf fengið hann lánaðan. Síðan á ég heilan helling af armböndum og hálsfestum sem passa við 🙂

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *