Vor!

Ahhh vorið er komið… það kom 1. mars. Um helgina voru haldin vorkaffi, vortónleikar, vorgöngur og fólk fór að sjá vorleikfimi. Allt útí vori. Ég missti af vorkomunni því ég var bara í eigin heimi heima hjá mér og á næturvöktum á gjörgæslunni.

Ég var svo mikið í eigin heimi að ég gleymdi að ég væri með púður í hárinu og power nappaði (lagði mig í 29 mín samkvæmt reglum)…

2014-03-03 15.40.15

Dagvaktirnar sem leystu mig af, höfðu ekki minnsta grun um power nappið og fannst nýja hárgreiðslan mín bara töff!?!

Þegar ég vaknaði í dag, fannst mér tilvalið að fagna vorinu með því að fara út að borða.

IMG_5095

Veðrið er svo yndislegt! Lífið er svo dásamlegt! Maturinn minn er svo unaðslegur!

Við Vaskur dubbuðum okkur upp… eða aðallega ég og nutum 6 stiga hitans og vindstigana 15m á sek.

IMG_5128 IMG_5132

Gleðilegt vor

Kær kveðja

Vaskur Pedersen Jónsson og Dagný Sylvía Sævarsdóttir

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *