Obama, Obama, O bama… lalala
ég held að hann verði góður forseti svo lengi sem hann lifir!
Hann er lika sjarmerandi og sexy… eins og Clinton!

Nú verður Guð heldur ekki nefndur i annarri hverri setningu… skyldi heldur aldrei hvað hann var alltaf að sniglast þarna i USA, held það sé meiri þörf fyrir hann annarsstaðar hingað og þangað víðsvegar um­ heiminn.

Ég er nýkomin heim úr vinnunni… yfirvinna á föstudegi… frábært!
Svala ekki heima, Aldís með vin í heimsókn og Fúsi líklega að versla.

Og ég hangi í laptop… ótrúlegt hvað maður getur hangið í þessari græju… og drukkið kaffi… skil ekki afhverju maður verður ekki brúnn af að drekka kaffi, eins og maður verður appelsinugulur af að boaða gulrætur og fjólublár af að borða rauðbeður!
Þó það væru ekki nema nokkrar freknur sem eg fengi…

Ein vinnufélagan var e-ð að tala um i dag hversu stutt væri til jóla… ég fékk smá krampa og lagði við hlustir… því­ stundum get ég verið svo tímavillt… held stundum bara alltíeinu að það sé allt önnur dagsetning en það er. þessvegna hefði alveg getað verið stutt í jólin… en sem betur fer var hun bara e-ð að  rugla… það er nú alveg rumur mánuður ennþá… nógur tími

Einn nágranninn neðar í ­ götunni austan megin, er búin að skreyta á ameríska vísu… held það séu allavega 4 seríur og eitt skilti á lóðinni… litríkt og blikkandi! Eins gott að þau séu ekki með búskap… ég myndi eyðileggja fiðurbúskapinn minn með svona látum!

Já það minnir mig á það… það þarf að fara að fóðra!

Veit einhver hvað mig langar í jólagjöf…?
Veit það  ekki sjálf… datt í hug hurð, eða spegil, eða kannski lista… tja veit ekki… trélisti er nú ekkert rosalega óvænt jólagjöf…
Fúsi er reyndar nýbúin að gefa mér gjöf… gaf mér hálsfesti 😀
En það var ekki jólagjöf.

5 Responses to “

  • Drífa Þöll
    15 ár ago

    það er nógur tími enn til jóla en ég þarf víst að vera skipulagðari núna en undanfarin ár þar sem ég mun væntanlega vera orðin afvelta um miðjan mánðinn sökum óléttu og það versta er að ég get ekki sett allt á Gunna því hann er alltaf á sjó…

  • HJÚKKITTTT
    YOU ARE BACK!!!!!!

  • eg sjalf
    15 ár ago

    En Drífa, þu ert kennari… eru kennarar ekki mega skipulagðir??? 😉
    Linda, 🙂

  • Mér finnst nú frekar stutt til jóla, enda er ég ekki búin að gera neitt nema aðeins að hita upp ofninn fyrir jólasmákökubaksturinn ;o)
    En hvernig er það, fer ekki að verða kominn tími á smá hitting, kaffi eða eitthvað? Orðið ansi langt síðan síðast.
    Og hvernig er það, ertu ekki búin að setja út eitthvað af jólaljósum? Við Knútur erum nefninlega í því um þessar mundir að skoða jólaljósin, hann er ekkert smá hrifinn af þessu öllu saman og þó er nú ekki búið að skreyta mikið hérna í Sdbg.
    Kv. Begga

  • hey common Begga… það er enn nóv. Jólaljósin hafa ekkert að gera upp fyrr en 1. des. munum að vera meðvituð um CO2! 😉
    ju thad er sko komin tími á hitting.
    knus

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *