maður hefur tilfinningar!!!

Aldís (á leið útur dyrunum að sækja 3 „nýju“ vinkonurnar sínar): „mamma, nennirðu svo að vera búin að skipta um föt áður en ég kem með stelpurnar heim…?“

Ég: „öhh er e-ð að þessum fötum?“

Aldís: „já“ og lokar á eftir sér hurðinni.

Stuttu seinna…

Svala: „mamma, ætlarðu ekki að mála þig áður en Aldís kemur heim?“

Ég: „öhh, afhverju?“

Svala: „afþví að þessar stelpur hafa ekki séð þig áður og þekkja þig ekki…“

Ég: „hmm“

Svoldil fýla í gangi…

Ég: „Svala mín, gerirðu þér grein fyrir að þegar þið voruð litlar og það komu gestir, voruð þið stundum brókarlausar… og neituðu að fara í nærbuxur!!!… hvernig heldurðu að mér hafi þá liðið?“

Svala: „ÞÖGN“

2 Responses to “maður hefur tilfinningar!!!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *