1.

Finnst bara mikilvægt að láta ykkur vita að nýji salurinn í city fitness er alveg að verða klár… og hann er geggjaður! Meira að segja parketið er ekkert ljótt (finnst langflest parket mjög ljót). Jeminn hvað ég hlakka til að fara að hoppa, skoppa og rembast þarna. Finnst ég alveg hafa stinnst helling síðustu vikur… magavöðvarnir eru handan við hornið og rassinn hefur yngst um nokkra mánuði innan í buxunum. En það er eitt sem ég skil ekki… hélt það héldist í hendur að vera fitt og brúnn og rennisléttur allsstaðar! Finnst flest fitnessfólk í auglýsingum vera svo brúnt og slétt. En ég verð bara hvítari og hvítari og krumpaðri og krumpaðri með hverjum stækkandi vöðva! Huxa að ég biðji minn eigin lækni um að vísa mér til húðlæknisins niðrí göngugötu til að láta tjekka á hvort það sé í lagi með mig.

2.

Eini maðurinn í heiminum sem má vera með blue tooth í eyranu (fyrir utan bílstjóra inn í bílum) er Claus í TDC! Engillinn sjálfur!

3.

Ég er ekki með innilokunarkennd og bara lofthrædd við MJÖG hættulegar aðstæður. En alls ekki með innilokunarkennd. Get alveg troðið mér inní skápa eða oní pappkassa án þess að líða ílla. En síðust upp úr námunni í Chile vildi ég ekki vera. (Gæti það samt alveg)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *