Vaskur töffari er með í gæludýrakeppni…

Ohhh ég veit, ég er alveg að detta í það að verða þessi óþolandi hundaeigandatýpa… Þarf alveg að stilla mig svo ég blaðri ekki endalaust um hvolpinn minn, og pósti ekki endalaust af honum á instagram eða facebook. Eða bloggi ekki endalaust um þetta gersemi. éG PAsSA MiG!!!

Og hvernig gat ég sagt nei þegar við vorum að shoppa í dýrabúðinni um daginn og við vinsamlegast beðin um að koma seinna sama dag í myndatöku því hann væri svo fallegur. Vaskur og ég vorum reyndar nýkomin úr skóginum og hann var skítugur upp fyrir haus en samt sáu búðareigendurnir fegurðina í gegnum skítinn.

Við fórum heim og burstuðum og greiddum og Vaskur fór síðan seinna um daginn með feðgininum í myndatöku. Fyrir ykkur sem eiga ekki dýr, þá skuluð þið vita að það  er heljarinnar mál að fara með öfgafélagslegan hvolp inn í svona dýrabúð þar sem allt angar af dýrum og þennan dag voru dýr útum allt.

Eftir nokkrar tilraunin tókst að láta hann sitja kjurran og lafmóðan í 2 sek og smella af.

vaskur_sønderborg_716

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo nú er Vaskur töffari með í keppni um fallegasta gæludýrið í Sönderborg…

Ef ykkur finnst hann fallegastur í heimi, eða finnst Fúsi fínn kall, eða viljið bæta fyrir ílla meðferð á mér um helgina… kjósið hann þá 🙂 Ég vil elska ykkur að eilífu fyrir það <3

Það þarf bara að smella á orðið „keppni“ hér að ofan, slóðin er þar.

Eeen ef ykkur finnst Vaskur Límmiði Jónsson ekki fallegastur, þá má BARA kjósa lítin hvolp sem heitir Athena…  Ekki neina aðra hunda eða hamstra. Er nokkuð viss um að Athena sé líka íslensk. Það eru bara þau 2 sem eru flottust.

 

 

2 Responses to “Vaskur töffari er með í gæludýrakeppni…

  • Freydís Dögg
    11 ár ago

    Endilega vertu dáldið óþolandi, hann er svo sætur 😉 Ég er mega skotin í Vaski og búin að kjósa hann!

  • Guðbjörg Valdórs
    11 ár ago

    Vaskur er æði og auðvitað fékk hann stig frá mér 😀

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *