Langaði bara að láta ykkur vita að ég á 13 ára dóttir sem býr til rjómatertu rétt fyrir kvöldmat á mánudagskvöldum… Ég spring! Ég verð kringlótt… ekki einu sinni með rass! Er að fá dauðans flatrass vegna hjólaleysis í 7 daga! Og ekki mæti ég í fitness… afhverju eru alltaf fundir á fitnesstíma… eða fitness á fundartíma. í síðustu viku voru 3 formlegir fundir, í þessari viku eru allavega 2 formlegir og 1-2 óformlegir. Tala nú ekki um vikurnar á undan síðustu viku.

Fékk dellu um helgina… langaði geggt að sauma… ráfaði um húsið blótandi og ragnandi yfir asnalegum opnunartíma efnabúðanna. Fáranlegt að hafa lokað á sunnudögum! Vá hvað ég gæti hugsað mér að sitja í verslunarráði og breyta opnunartíma allra búða í norður Evrópu. En svo nennti ég ekki að koma við á leið heim úr vinnunni í dag þar sem ég var labbandi… dettur ekki í hug að labba svona langt af sjálfsdáðum og langar ekki rassgat að sauma núna!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *