mikilvæg skilaboð!

Það er svo indælt að vakna eftir næturvakt og fá sms um það hvort maður sé óléttur…

Þar kom skýringin á hlátursköstunum sem ég heyrði í stofunni í gærkvöldi á meðan ég reyndi að sofa fyrir næturvakt.

Bæði eiginmaður og börn tilkynntu umheiminum á facebook að ég væri ólétt eftir svartan póstmann og buðu að auki allri facebook að vera með í fæðingunni. Jeee æði. Líkurnar á að ég verði ólétt eru sáralitlar og hvað þá eftir svertingja því slíkur náungi myndi ekki NENNA að barna mig. En óneitanlega hafði ég gaman af kommentunum… eins og ein sem taldi mikla möguleika á „mórubóldóttu“… það vissi restin af fjölskyldunni ekki hvað þýddi!!! Hahaha og Dortes komment: Nåh, er det ham dværgen med overbidet som lugter at kattetis? Han er også ret lækker… og í þokkabót svartur!!! Hahaha

Nei kæru vinir og fjölskylda… þótt ég geri stundum asnalega statusa færi ég ekki að tilkynna svona slys á fb.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *