bylgjan sucks

Ætlaði að gerast mega íslensk samhliða verkefninu sem ég er að gera og hlusta á íslenskt útvarp… btw… sem ég geri nánast aldrei. Prófaði Bylgjuna og allt sem í boði þar er… ónei… jafn boring og fyrir rúmlega 5 árum þegar við bjuggum á íslandi. Rás 2 sjálfu sér lík… allavega betri en Bylgjan… en eins og venjulega gefst ég upp og held bara áfram að hlusta á ríkis eða lokal útvarpið hérna heima. Hei ætlaði líka að testa einn cd… var bent á tonlist.is… þar ætti að vera hægt að hlusta á brot… jújú en þvílíkt mál maður… gafst upp. Mæli með að tonlist.is breyti um aðferð og taki upp adferð sem cdskiven.dk notar… mikið þægilegra. Ég heyrði ekkert og ætla því ekki að hugsa meira um það… ætla bara í fílu!!!
Fílu yfir að hlutirnir eru ekki alltaf eins og ég vil hafa þá!

Á mínu heimili er öll jólastemning trömpuð niður… engin minnist á jólin, nema rétt um jólagjafirnar… sem þarf að fara að senda… afvherju getur ekki bara verið augljóst hvað fólki vantar og vill???
Við erum meira að segja búin að taka ákvörðun um jólakortin… ekki víst að allir verði jafn upprifnir.. þeas þeim sem finnst gaman að fá frá okkur jólakort… en við viljum áfram fá sem flest… en þeir sem eru á 100 km hraða fram að 22. des þurfa ekki að senda okkur. Þess vegna þarf ég ekki að senda öllum…þar sem ég verð á 100 km hraða fram að 22.des í verkefninu mínu. Vissuði hvað ég valdi að skrifa um núna… í 2.ekstern??? Var nú öruggelga ekki búin að segja ykkur það. En ég er að skrifa um Alkoholikarann… þeas sá sem er innlagður og hver mín rolla er (ekki kind, heldur hlutverk).
Veit einhver um gamla konu sem tekur að sér að undirbúa jólin fyrir lítinn pening???
ren
Over and out
ds. Sævars

One Response to “bylgjan sucks

  • Dísa
    17 ár ago

    Ég skal taka að mér að undirbúa jólin fyrir þig Dagný mín….Er reyndar ekki gömul kona (langt frá því). Finst svo gaman að standa í þessu jólastússi þó ég hafi engan tíma fyrir það. Er búin í prófum 15 des…kem þá…
    Jólaknús
    Dísa

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *