3. i afmælum

I dag (14.) á dronningen afmæli hurra hurra hurra…
dr

Í dag kíktum við til Bóasar og Sonju, og ætluðum að sjálfsögðu að koma við í Poetzsch í leiðinni. Á heimasíðunni stóð að það væri opið til kl. 1900 á helgidögum og það var opið kl 1500 og fullt af fólki fyrir utan. Ok, við ákváðum ad (til að vera sem heiðarlegust) versla í bakaleiðinni. Fúsi fór í tölvuna hjá Bóasi… og kl 1830 sá ég ekki fram á að taka neitt í bakaleiðinni, þannig að ég, ásamt Sonju, Hrefnu, Tinnu og Mána skutumst í Poetzsch en viti menn… allt lokað… allt fucking 100% lokað… ooo þoli ekki svona frídaga… heldur fólk bara virkilega að það geti leyft sér að vera í fríi alla rauða daga??? Hvað myndi gerast ef við heilbrigðisgeirafólkið myndum bara fara í frí á rauðum dögum… ha? Það yrðu ekki allir sáttir… engin skadestue eða læknavakt… engin til að skipta á ykkur, engin til að færa ykkur lyfin og það fengi engin neitt að éta… því það erum við sem berum oní fólkið matinn á þessum sjúkrahúsum… og þess vegna finnst mér 100% réttlátt að ég fái líka e-ð að éta og drekka á þessum rauðu dögum. Þannig að hunskist í vinnuna ykkar, þjóðverjar og danir… takið svíana ykkur til fyrirmyndar og hættið þessu rugli og komið á móts við borgarana og túristana. En sjoppurnar og sumir kaupmenn á horninu eru ekkert að svíkjast undan og alveg að vinna sína vinnu hérna .. gott hjá þeim!
Ef ástandið er líka svona slæmt á íslandi, þá kem ég ekki um páska fyrr en búið er að breyta þessu.

Góða nótt

3 Responses to “3. i afmælum

  • Fann þetta á kongehuset.dk Dagný, vildi bara láta þig vita að þú ert með vitlausan afmælisdag á drottningunni í blogginu þínu. Hélt, einhverra hluta vegna, að þú værir nú betur að þér í þessu en þetta ;o)

    Kalender
    16/04 06 H.M. Dronningens fødselsdag. Parade og ”balkonscene” i haven på Marselisborg Slot.
    Njótið veðurblíðunnar í Sönderborginni okkar fögru.
    Knús Begga

  • 😉 hélt reyndar að ég fengi fleiri komment út á þetta en þetta… mátti reyna 😉

    Kveðja til Seyðfirðinga

    Knus

  • Hafdís
    19 ár ago

    Dagný, reyndu að róa þig niður og svo vona ég bara að þú eigir ánægjulega páska og eitthvað að borða líka hahahhahah !!
    Hafdís