búðin í Kastanie Allé

Eftir nokkrar vikur fer ég á atburð þar sem verður þema. Þemað er leyndarmál af dýpstu tegund en það þarf að byrja að huga að outfittinu. Í dag fór ég inn í leikfanga/fatabúð til að freista gæfunnar um að finna hluta af búningnum. Mér finnst, þrátt fyrir að vera klúr á yfirborðinu, óþægilegt að fara alein inn í svona búðir og einmitt þessvegna löbbuðu 2 af sjúkrahússendlunum framhjá þegar ég var að fara inn. En inn fór ég og leit í kringum mig. Augnabliki síðar þegar ljóshærði, sjúklega kynþokkafulli afgreiðslumaðurinn var búin að afgreiða skuggalegan austurevrópskan mann, vatt hann sér að mér og spurði:

„get ég aðstoðað?“

Ég: „ég er bara að skoða og spá í möguleikum fyrir „bíb“ stíl“ („bíp“ er leyniorð fyrir þemað þar sem það er leyndarmál)

Hann: „hvað er „bíp“ stíll?“

Ég útskýrði það, en e-ð hlýtur útskýringin að hafa klikkað því sjúklega sexy gæinn þrífur fram hvítan latex hjúkkubúning með blúndu sokkaböndum og naríum.

Ég: „já nei nei!“

Þá galdrar gæinn næsta hjúkkubúning fram, en það var rauður latex kjóll með hjúkkukappa og allt. Og aftur hristi ég bara hausinn og þá kemur hann með þriðju útgáfuna!

Ég: „sko þetta er ekkert svona þema, og aldrei færi ég að fara í þesskonar hjúkkubúning, þar sem ég veit að hjúkkubúningar in the real live eru oft útataðir hinum ýmsum ósýnilegu manneskjuúrgangsefnum og það er ekkert sexy við það“

Hann: „já ok, þá er ég hérna með kúrekastelpuna, hún er alltaf svo sæt“

Ég: „heyrðu, þetta er ekkert svona þema… heldur „bíb“ þema og ég ætla ekki að nota mikla peninga í þetta því þetta er bara partur úr degi skilurðu?“

Hann: „já ég skil“  og fór að sýna mér myndir úr bæklingi, þám af bleikum, flegnum, þröngum kjól sem var of mikið fyrir mig. En honum fannst hann voðalega sætur og spurði svo hvað ég fílaði? Þarna var ég sko komin á bakvið afgreiðsuborðið með honum og bæklingnum. Hann benti mér t.d. á háhælaða 16cm skó sem kostuðu 1175kr. Svona ekta pornoskó!

Ég reyndi enn einu sinni að útskýra tilganginn og tók sem dæmi, grímurnar sem seldust í búðinni hjá honum fyrir síðustu helgi. Þá sagðist hann hafa séð okkur í bænum og stigið á kjólinn hjá einni okkar og sagðist hafa orðið svo vandræðalegur og sagði FYRIRGEFÐU! Síðan greip hann með báðum höndum fyrir andlitið á sér.

Ég: „já ok?“

Hann byrjaði síðan að googla þýskar dóta/fatasíður og sýna mér hina ýmsu búninga og þarna sat ég föst á bakvið afgreiðsluborðið í ÞESSARI búð í miðbæ Sönderborgar. Og með þessum hotta gæja sem dregur buxurnar vel uppfyrir 6. rifbeinið (talið neðanfrá). Ég var í skýjunum!

Það var þá sem ég sagði: „jæja, ég ætla að hugsa málið og kem kannski aftur seinna“

Hann: „já ef þú kemur á morgun, þá er ég ekki hérna en sem betur fer verður June að passa búðina fyrir mig. Já það er nefnilega þannig að ég þarf að fara með bílinn á verkstæði. Já það gerðist smá óhapp sko, já það vildi nefnilega þannig til að það var galli í bílnum og ég lagði í brekku og gleymdi að setja í handbremsu og bíllinn rann niður brekkuna og lennti á næsta bíl og skemmdi báða bílana. (Og þarna greip gæinn aftur með báðum höndum fyrir andlitið á sér). Og þessvegna er ég heppin að hafa samið við June að taka þennan dag fyrir mig, því það var löngu „aftalt“ áður en bíllinn rann niður brekkuna og svo er ég í fríi í næstu viku, þannig að þetta var hrein heppni að June er hérna á morgun, því annars hefði ég ekki getað farið með bílinn á verkstæðið…“

Ég: „já ok, nú fer ég, bless“

Þið naughty girls hér í Sönderborg, ég fer ekki ein þarna inn aftur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *