Hér er Blár, um Bláan, frá Bláum, til Blás…

Blátt á augunum verður það heitasta í sumar. Ég er alveg sátt þar sem blár er alltaf fallegur. Var e-ð að snúsast oní Dior standinum í Matas um daginn og dást að nýju litunum. Matasafgreiðsludaman kom til mín og í sameiningu dáðumst við. Og svo bauð hún mér að hitta Diorkynningakonu og láta hana prófa þetta bláa á mér. Ég yppti öxlum og sagði: „why not?“ og bókaði tíma.

Í dag fór ég… fárveik… nánast að dauða komin.

2013-05-08 15.59.32

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svona veik er ég…

Diordaman sagði að þessi blái (sem kostar 470kr) færi mér ótrúlega vel… og að það væru bara örfáir einstaklingar sem gætu borið hann… og þar væri ég í efsta sæti. Að hún hefði aldrei  séð þennan lit svona flottan á neinni áður. Að hún hefði aldrei séð svona augu sem bæru litinn á sama hátt og mín. Ég beið eftir að hún myndi stinga tungunni upp í mig. En ég féll ekki fyrir þessum gullhömrum og keypti ekki agnarlítin bláan augnskugga á 470kr.

En naglalakk fyrir 20kr er velkomið inn á mitt heimili…

Og við Vaskur erum bæði feministar.

2013-05-08 11.40.42

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Honum finnst þetta æði!

2013-05-08 11.51.03

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nauðsynlegt að vera með spora þegar maður er hundur…

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *