Ljónið

Um daginn var ég e-ð að skrolla á fb og rakst þá á þessa stjörnuspá… les mjög sjaldan stjörnuspár og spái óttalega lítið í andlegum málefnum og hlusta aldrei á nýaldartónlist. En þessa spá renndi ég yfir og viti menn, ég er ekki frá því að hún passi pínu.

Ljón og árið 2013

22112_599400670073273_1670878517_n

Ljón elska skemmtilegt andrúmsloft og þeim er lagið að mála tilveruna í litum, tónlist, og dansi, segja brandara til að öðrum finnist líka gaman og þau leggja ýmislegt á sig til að skreyta umhverfið með gleði og skemmtilegum augnablikum. En nú blandast meiri alvara inn í tilveru Ljónanna, sérstaklega Ljóna sem fædd eru á bilinu 26. júlí til 14. ágúst.

Nú þurfa þau að sýni aga, draga úr eyðslu, skipuleggja tímann sinn og nú komast þau ekki lengur upp með að trassa leiðinlegu verkefnin sem þau eru svo lagin við að fresta. Þetta hljómar kannski frekar leiðinlegt í huga Ljónanna en þetta er ekki alslæmt því skipulag, festa og einbeiting þeirra mun skila þeim árangri sem þeim mun ekki leiðast.

Ljón fædd á tímabilinu 27. júlí til 6. ágúst eru líkleg til að komast hjá því að láta skylduverkin og annirnar hefta sig of mikið. Kannski tekst þeim að breyta skylduverkunum í ævintýri og finna óvenjulegar lausnir á málunum eða kannski fara þau bara til útlanda og þá eru minni líkur á að skylduverkin þvælist fyrir þeim. Annars er það óbrigðult ráð fyrir Ljón, svo þau deyi ekki úr leiðindum þegar þau þurfa að gera eitthvað sem þeim leiðist, að gera eitthvað skemmtilegt á milli leiðinlegu verkanna.

Lion-stealing-camera

Í dag gerði ég ekki eingöngu óþarfa og það sem mér finnst skemmtilegt að gera… ég t.d. bjó til regnkápu, þvoði þvott og hellti bláu naglalakki í sófann (akkúrat naglalakkið var eiginlega það leiðinlegasta sem ég gerði í dag).

Annars er ég bara búin að hafa það gott og skemmtilegt 🙂

Animals_Beasts_Playing_the_Lions_025247_

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *