Ég er gömul og gleymd á sjálfan mæðradaginn…!

Eiginmaðurinn er í essinu sínu í dag…

Hann: „viltu tölvu í fertugsafmælisgjöf?“

Ég: „nei takk“

Hann: „hvenær verðurðu annars 40tug?“

Ég: „ef ég er 38 og 3/4 núna, hvenær verð ég þá fertug?“

Hann: „á næsta ári???“

Ég: „já“

Hann: „Ja hérna, ég hef aldrei verið með svona gamalli konu…“

Seinna…

Ég: „það er víst mæðradagur í dag“

Hann: „já alveg rétt, ég gleymdi að segja þér það…“

Ég: „það eru ALLAR á facebook að fá gjafir… :“’I“

Hann: „hættu að kvarta, ég keypti skjólvegg handa þér í dag!“

Hann Sigfús minn brillerar algjörlega á þessum sunnudegi!

gifts

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *