Hvursu hættulegt er svæðanudd?

Haldiði ekki að ég hafi fengið gjöf á dögunum. Eitt stykki tíma í svæðanuddi! Meltið það í smá stund.

Gefandinn gaf mér þetta því þetta á að vera svo ofboðslega þægilegt.

Ég hef aldrei farið í svæðanudd og hef hræðst það eins og sálfræðinga, kírópraktora og spáfólk. Ég er nefnilega viss um að sálfræðingar splitti manni upp í pínulitlar agnir og svo þarf maður sjálfur að púsla sér saman aftur. Spáfólk er of draugalegt fyrir mig og telur manni trú um hluti sem maður reynir svo að lifa eftir til að spádómurinn rætist. Kírópraktorar leggjast oná mann, kreista á manni rasskinnarnar og klemma taugar svo löppin brennur og maður kemst ekki í vinnuna í 2 daga á eftir.

Þeir sem mér aftur á móti líkar vel við eru; tannlæknar, snyrtifræðingar, bankaráðgjafar, hárgreiðslufólk, allir læknar, sjúkraþjálfar og bifvélavirkjar.

Svæðanudd… Samkvæmt svæðanuddurum er þetta eldgömul meðferð… frá Kina, Indlandi og eða Egyptalandi. 1913 kom nuddið til Vestuheims. Degi áður en ég fékk gjöfina, spurði vinkona mín facebook um góðan svæðanuddara á Sönderborgarsvæðinu því hún átti í vandræðum með að kúka. Hún fékk sextíu svör. Yfir helmingur svaranna var frá læknum og hjúkrunarfræðingum sem vildu ólmir hjálpa með tækjum og tólum. Ég sannfærði hana um að ég væri sú besta til að leggja Flexi-seal (endilega googlið ef þið þekkið þetta ekki). Hinir bentu á hina ýmsu svæðanuddara sem höfðu unnið kraftaverk, svo sem að fjarlægja astma og bæta heyrn.

Síðan daginn eftir fæ ég þessa gjöf, alveg óháð facebook umræðunni. Og það greip mig einhversskonar hræðsla eða óvissa/óöryggi. Ef vinkonan ætlar til svæðanuddara til að kúka, hvað gerist þá með mig?

Ef nuddarinn ýtir á þarmana í fætinum, kúka ég þá í buxurnar? Samkvæmt svæðanuddsmynd eru þarmarnir útum allt í löppunum. Get ég orðið ólétt? Spurningin er eðlileg þar sem það eru bæði eistu og eggjastokkar í aftanveðri ilinni. En ef hann ýtir á þvagblöðruna í tánum? Ætti ég að vera með næturdömubindi til öryggis? Tilhugsunin er hræðileg! Ekki tilhugsunin um að vera með dömubindi heldur hitt… að ég ráði ekki neitt við neitt.

Og hvað gerist ef nuddarinn ýtir of fast á barkann í fætinum? kafna ég? Eða hjartað? Ef hann veldur of hægum slætti… hjartastopp… búmm! Og ég bara dauð? Eða getur hann lífgað mig við með að hjartahnoða hælinn?

sleep_spot__-_TCM_foot_massage

Svei mér þá, ég er ekki alveg róleg… Hefur einhver reynslu af svona galdralækningum?

P.S. Er kannski með gjafabréf í svæðanudd til sölu… ódýrt!

Trackbacks & Pings

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *