nú er ég búin að borga fitness í 3 mánuði og finnst ég alveg vera „fitt“. Það hjálpaði líka að horfa talsvert á VM í sumar… fékk nokkuð góða lærvöðva af því. En F finnst þetta vera peningasóun og vill meina að það sé engin breyting… blindi maður! Þessvegna fór ég á netið í dag og skráði mig í tíma næstu 4 vikurnar! Þó það sé alveg óþarfi… nóg að borga bara!

Ég á yndislega dóttir… við vorum að gera svoldið ólöglegt á bílnum í gærkvöldi og rétt eftir að við hættum þessu ólöglega, mættum við löggunni!!! En dóttirin er snilli og er komin á þann aldur að hún þarf að kunna vissa hluti! (það sama og ég gerði á hennar aldri)

Annars var ég að spögulera í að halda upp á afmælið mitt… bendi á óskalista sem var birtur síðla vors eða veturs.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *