muna ruslafötur á wc´in!

Í dag fór ég í einar gallabuxurnar mínar í 1. skiptið í 3 vikur og fann samanbrotið og vel þvegið dömubindi í vasanum. Shit maður! Notað??? Við nánari eftirgrennslan var það innsiglað og þar með ónotað… og getur því notast við tækifæri 🙂

Hvaða kona kannast ekki við að vera einhversstaðar, t.d. í skólastofu og þurfa að skipta og treður því bindinu í vasann á buxunum, í staðin fyrir að ganga með það dinglandi í hendinni og auglýsa fyrir öllum skólanum að maður sé á túr. Þetta hef ég gert fyrir 3 vikum þegar ég var í skólanum.

En það er líka til önnur „dömubindiívasa“ aðstæða sem allar konur þekkja. Það er þegar maður er í heimsókn einhversstaðar, t.d. smábarnaafmæli og það er ekki ruslafata á wc´inu! Hate it! Hvað gerir maður þá? Ef maður er heppin að vera í flík með vasa, pakkar maður bindinu vel inn og treður því í vasann! Fer svo beint inn í eldhús og biður til Guðs um að engin sé í nágrenni ruslatunnunar. En hvað gerist… það er jú smábarnaafmæli og mæðurnar flokkast í eldhúsið til að ræða tanntökurnar.  Ég sný við á punktinum því ruslatunnan er blokkeruð og tanntökur barna segja mér akkúrat ekki neitt. Myndi kannski nenna að hlusta ef barnið væri orðið 10 ára og engar tennur fengið. En þá er að tékka á ruslatunnunni úti. Heldur ekki að henni er greið leið því þar standa smábarnafeðurnir og reykja og tala um nýjustu tísku í hellulögnum. Og það er vita vonlaust að lauma notuðu dömubindi framhjá svona gaurum… látið mig vita það, hef reynt!

Þá fer maður inn aftur og eina úrræðið sem er eftir er, er að tjekka á barnaherberginu þar sem örlítið eldri systkini eru niðursokkin í óskiljanlega leiki sem virðast ganga út á að rusla sem mest út. Maður rekur inn hausinn, segir hæ til að venja þau við nærveru manns, tipplar svo á tánum á milli flugbeitts dóts, deilir út kommentum á borð við: „rosalega ertu í sætum kjól, Sigga“, „ofboðslega hefurðu stækkað Siggi“ osv, og endar svo hjá dukkuvagninum hennar Gunnu. Sýnir liggjandi dúkkunni mikin áhuga, þykist ath hvort hún hafi pissað á sig og laumar dömubindinu niður á milli fótanna á Dísudúkku. Jebb þessu hef ég oft lent í og þetta þekkja allar kynsystur mínar því það er alltof algengt að það vanti ruslafötur á wc´in.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *