Putin, púður og surprise…

Fyrsti hluti færslunar ætti að lesast með rússneskum hreimi.

Kærrru lessendurrr. Okkurrr errr sönn ánægja að tilkynna ykkkurrr að forrrrrrseti Rrrrússslands, Vladimirrrrrrr Putin er nommminnnerrrret eða tilllnefndddurrrr til frrriðarrrrverrrðlauna Nobelssss.

russia-emirates_live_2_mugshot_four_by_three_s310x233

Vladimirrrr Putin forrrseti á þessa tilnefningu fyllilega skilið. Hann stuðlarrr sífellt að frrriði með að setja frrriðarspilla á bak við lás og slá eða drrrrepa þá. Pakki eins og mannrrrréttindarsinnum, kynvillingum og öðrrru glæpahyski verrrðurrr brrrrátt útrrrýmt í Rússsslandi á meðan frrriðarrrrsinninn Vladimir Putin errrr forrrseti! Hvarrrr geturrr maðurrr kosið?

My fat ass… fat-ass

Yfir í e-ð skemmtilegt…

Í gær fór og ég keypti mér púður í hárið… þetta er 3ja „dollan“ af púðri sem ég eignast.

Og sú allra besta!

2013-10-03 20.26.39

Þetta er sænskt púður, frekar stíft og það er æði að nota það útaf þessum mjóa stút. Þetta er besta púðrið sem ég hef notað. Mæli með því fyrir stelpur og stráka.

Versta púðrið sem ég hef notað er þetta…

2013-10-03 20.31.13

Þetta er svo svakalega fínt að ég hnerra 17 sinnum og Vaskur líka. Þetta er heldur ekki nógu stíft. Mæli ekki með þessu.

Helgin er á næsta leiti og ég hlakka svo til. Ég er að fara á 2 óvissuuppákomur og 3 næturvaktir. Er svo tilbúin… með naglalakk og allt.

Á morgun er vinnan með þemadag og það á að „hrista“ okkur saman, þar sem það var að bætast við deild undir stjórnina okkar. Við eigum að vera úti og þetta verður e-ð líkamlegt, e-r hreyfing, e-ð gaman… og síðan út að borða. Á laugardaginn er árlegi konudagurinn hjá íslendingafélaginu og það er alltaf hreyfing og skemmtilegheit yfir daginn og það er alltaf leyndó þangað til mætt er á staðinn…

2013-10-03 21.17.08

Elska svona óvænt! Líklega verða næturvaktirnar einnig fullar af óvæntum uppákomum.

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *